Sendiráð Bandaríkjanna í Svíþjóð, Finnlandi og Noregi hafa sent frá sér viðvörun til bandarískra þegna um að hryðjuverkamenn kunni að láta til skarar skríða í þessum ríkjum og ráðast á bandaríska ríkisborgara, fullorðna sem og börn. Sendiráðin vara við alvarlegum árásum og mannránum og benda á að hryðjuverkamenn hafa áður notað hnífa, skotvopn og ökutæki til árása.
Skólar, sjúkrahús, kirkjur, ferðamannastaðir, almenningssamgöngur og opinberir staðir eru sagðir hugsanleg skotmörk.
Þrír voru handteknir í Svíþjóð í síðustu viku, grunaðir um undirbúning hryðjuverka. Allir þrír eru frá Úsbekistan en lögreglan hafði fylgst með þeim í töluverðan tíma áður en látið var til skarar skríða.