fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Pressan

Yfirmaður ýtti kústskafti upp í endaþarm öskrandi lærlings

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 7. júní 2018 06:30

Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fljótlega tekur dómstóll í Kolding í Danmörku fyrir mál þar sem fjórir iðnaðarmenn eru ákærðir fyrir sérstaklega hættulegt ofbeldi og misþyrmingar á fyrrum lærlingi hjá fyrirtækinu sem þeir starfa hjá. Samkvæmt ákærunni var lærlingurinn margoft beittur grófu ofbeldi af samstarfsmönnum sínum. Í eitt skiptið hélt einn þeirra lærlingnum föstum á meðan yfirmaður þeirra þrýsti kústskafti upp í endaþarm lærlingsins. Það blæddi úr endaþarmi hans eftir þetta.

Þetta kemur fram í Fagbladet 3F. Eitt sinn var ráðist þrisvar sinnum á lærlinginn á einum degi og í öll skiptin ýtti yfirmaður hans kústskafti eða líkum hlut upp í endaþarm hans. Eitt sinn réðst einn mannanna á lærlinginn og hélt honum föstum á meðan yfirmaður þeirra klippti gat á buxur lærlingsins og stakk blýanti upp í endaþarm hans. Það hafði engin áhrif á mennina að lærlingurinn öskraði og bað þá að hætta.

Saksóknari segir að hér sé um grófar líkamsárásir að ræða og kynferðislegt ofbeldi. Allt að sex ára fangelsi liggur við brotum af þessu tagi.

Yfirmaðurinn og einn fjórmenninganna eru einnig ákærðir fyrir kynferðislegt ofbeldi gagnvart unga manninum, ekki þó samfarir að því er fram kemur. Ákært er fyrir brot gegn hinni svokölluðu nauðgunargrein hegningarlaganna en við broti á þeirri grein liggur allt að átta ára fangelsi.

Hinir tveir iðnaðarmennirnir eru ákærðir fyrir að hafa tekið þátt í einu ofbeldisverki en það var tekið upp á myndband.  Þeir eru báðir útlendingar og krefst saksóknari að þeim verði gerð refsing og vísað úr landi.

Á fyrrgreindri upptöku sést þegar lærlingnum er haldið föstum af samstarfsmanni sem situr ofan á honum. Fætur hans eru bundnir saman með reipi sem er síðan losað og sett um háls hans í skamma stund. Því næst eru fætur hans aðskildir og kústskafti þrýst af miklu afli upp í endaþarm hans. Lærlingurinn öskrar og reynir að skríða á brott en á upptökunni sjást fjórmenningarnir hlæja hátt að þessu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð
Pressan
Í gær

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu
Pressan
Fyrir 2 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Pressan
Fyrir 2 dögum

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ferðin til Mallorca endaði með nokkurra daga hryllingi og björgunaraðgerð á flugvelli í Afríku

Ferðin til Mallorca endaði með nokkurra daga hryllingi og björgunaraðgerð á flugvelli í Afríku
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaxandi áhyggjur af ofureldfjalli – Er það að vakna til lífsins?

Vaxandi áhyggjur af ofureldfjalli – Er það að vakna til lífsins?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Berst við 4. stigs krabbamein – Yfirmaðurinn pressar á hana að koma aftur til vinnu

Berst við 4. stigs krabbamein – Yfirmaðurinn pressar á hana að koma aftur til vinnu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óhugnalegt atvik í New York: Kveikti í sér fyrir framan dómshúsið þar sem réttað var yfir Trump

Óhugnalegt atvik í New York: Kveikti í sér fyrir framan dómshúsið þar sem réttað var yfir Trump