Lögreglan taldi í fyrstu að um aðskilin mál væri að ræða en fljótlega vaknaði grunur um að sami maðurinn hefði verið að verki. 20 mínútum eftir að tilkynnt var um fyrra morðið barst lögreglunni ábending um að 39 ára síbrotamaður hefði hugsanlega verið að verki.
Þegar seinna líkið fannst var maðurinn á nektarklúbbi í Stokkhólmi ef miðað er við gögn úr farsíma hans. Maðurinn var handtekinn 17. nóvember grunaður um fyrra morðið og síðar bættist hitt morðið við rannsóknina.
Ákæra hefur nú verið gefin út í málinu. Aftonbladet segir að í henni komi fram að maðurinn hafi umgengist bæði fórnarlömbin dagana fyrir morðin. Saksóknari hefur ekki viljað upplýsa hvaða ástæður geta legið að baki morðunum en það mun væntanlega koma fram við réttarhöldin.
Maðurinn hefur hlotið fjölda dóma á undanförnum 20 árum, þar á meðal nokkra langa fangelsisdóma. Hann hlaut síðast dóm síðasta sumar. Í dómsorði kemur fram að maðurinn hafi sagt að hann væri að reyna að slíta sig frá vinum og kunningjum í glæpaheiminum og hefja nýtt líf án afbrota og eiturlyfja en hann þurfi hjálp til að þetta takist. Hann var sakfelldur fyrir líkamsárás og hótanir. Hann var dæmdur til að sæta eftirliti og fara í fíkniefnameðferð. En 12. september stakk hann af úr meðferðinni.
Hann neitar sök.