Órói og skemmdarverk hafa sett svip sinn á nóttina á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Þar hefur verið kveikt í þremur bílum og mörgum gámum. Sjónarvottar segja að hópur 15 til 20 ungra karlmanna hafi verið að verki. Lögreglan hefur handtekið tvo vegna málanna en annar þeirra var staðinn að verka þegar hann ætlaði að kveikja í fjórða bílnum.
Hinir handteknu eru 17 og 20 ára. Sá yngri býr á Norðurbrú en hinn í Hvidovre.