fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Með vasaljós að sniglast í Kópavogi – Ofsaakstur í Ártúnsbrekku

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 5. ágúst 2018 07:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klukkan 02.02 í nótt var tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir við Fífulind í Kópavogi. Þar var maður með vasaljós að skoða hjól. Hann var handtekinn skömmu síðar en þá ók hann bifreið. Bifreiðin reyndist vera með röng skráningarnúmer. Maðurinn er grunaður um að hafa stolið bifreiðinni, að hafa ekið henni undir áhrifum fíkniefna, vörslu fíkniefna, brot á vopnalögum og skjalafalst. Hann var vistaður í fangageymslu.

Síðdegis í gær var ökumaður handtekinn við Logafold í Grafarvogi en hann hafði ekið á göngustígum og spólað upp gróðri. Ökumaðurinn er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna og án tilskilinna ökuréttinda.

Um klukkan eitt í nótt var maður handtekinn í Hafnarfirði en hann er grunaður um húsbrot. Hann var vistaður í fangageymslu.

Fjórir ökumenn voru handteknir í nótt grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra er einnig grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis og að hafa ekið sviptur ökuréttindum. Annar er einnig grunaður um brot á lyfjalögum og vörslu/sölu fíkniefna. Sá þriðji ók án þess að hafa öðlast ökuréttindi.

Einn ökumaður var handtekinn í nótt grunaður um ölvun við akstur.

Afskipti voru höfð af ökumanni í Mosfellsbæ í nótt en sá er grunaður um að hafa verið að aka fólki gegn gjaldi án þess að hafa tilskilin leyfi til þess.

Á sjöunda tímanum í gærkvöldi var ökumaður kærður fyrir of hraðan akstur á Vesturlandsvegi en bifreið hans mældist á 132 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 80 km/klst.  Um hálfri klukkustund síðar var annar ökumaður kærður fyrir of hraðan akstur í Ártúnsbrekku en hraði bifreiðarinnar sem hann ók mældist 134 km/klst en leyfður hámarkshraði er 80 km/klst.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hryllilegur dauðdagi Nicole Brown Simpson og Ronald Goldman

Hryllilegur dauðdagi Nicole Brown Simpson og Ronald Goldman
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sérfræðingurinn segir að þetta eigir þú að borða á kvöldin ef þig langar að byrja daginn á góðum hægðum

Sérfræðingurinn segir að þetta eigir þú að borða á kvöldin ef þig langar að byrja daginn á góðum hægðum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 4 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?