TV2 hefur eftir talsmanni lögreglunnar að húsið hafi líkst húsbáti sem hafi losnað frá festingum. Eigandi hússins gaf sig síðan fram við lögregluna. Húsið er sumarhús í eigu hans en hann teiknaði það og byggði sjálfur. Það vegur um fimm tonn.
Húsið eða húsbáturinn er að jafnaði festur við eins og hálfs tonn akkeri og telur eigandinn líklegt að einhver hafi skorið á festingarnar, húsið hafi ekki getað losnað af sjálfu sér.
Húsið festist á grynningum og í dag verður reynt að draga það á flot og koma aftur á sinn stað.