IKEA í samvinnu við fyrirtækin Area Academy og Unyq ætla að skanna afturendan á viðskiptavinum IKEA til að búa til hinn fullkomna stól sem er sérstaklega hannaður fyrir hvern og einn. Með þessu er fyrirtækið að sækja á markað hjá sérstökum markhópi, það er einstaklingar sem spila mikið af tölvuleikjum. Um 2 milljarðar manna spila tölvuleiki reglulega og er því um stóran markað að ræða. Ferlið fellst í því að afturendinn á viðskiptavinum er skannaður og með notkun þrívíddar prentara er hver og einn stóll sérstaklega hannaður fyrir viðskiptavininn.
IKEA segist að þetta eigi ekki eingöngu eftir að auka þægindi viðskiptavina, heldur einnig bæta getu þeirra í spilun á tölvuleikjum. „Við hjá IKEA erum forvitin að vita hvernig við getum notað nýjustu tækni við framleiðslu á húsgögnunum okkar til að auka bæði þægindi og betri reynslu við spilun á tölvuleikjum. Við trúum því að með þessu samstarfi séum við með öll þau tól sem þarf til að gera húsgögn persónulegri fyrir hvern og einn af okkar mikilvægu viðskiptavinum.“ segir Marcus Engman yfirmaður hjá hönnunardeild IKEA.
Hönnun stólsins er enn þá á byrjunarstigi en fyrirtækið áætlar að hefja sölu á honum árið 2020.