Yfirvöld í Hanoi, höfuðborg Víetnam, hvetja íbúa sína að hætta að borða hundakjöt þar sem það skaði ímynd borgarinnar, ásamt því að ræktun á hundunum auki líkurnar á því að hundaæði breiðist út um borgina.
Nguyen Van Suu, varaborgarstjóri í Hanoi, segir á opinberri heimasíðu borgarinnar að slátrun og eldamennska á hundakjöti geti verið hræðileg sjón fyrir ferðamenn að sjá og þar að leiðandi skaðað ímynd borgarinnar. Hvetur hann einnig alla íbúa borgarinnar að kynna sér hætturnar sem ræktun á hundum og köttum til manneldis geta valdið, þá sérstaklega hættuna á hundaæði.
Yfirvöld í borginni segja um 493.000 hundar og kettir séu í borginni og um 10% af þeim dýrum endi á diskum borgarbúa.
–
–
–