Fellibylurinn Florence byrjar að láta að sér kveða á austurströnd Bandaríkjanna í kvöld og óttast sérfræðingar mjög að hann muni valda miklu tjóni. CNN hefur tekið saman fimm ástæður þess að Florence er talinn jafn hættulegur og raun ber vitni.
Florence hefur þegar sýnt að hann er að nokkru leyti óútreiknanlegur. Hann fór úr því að vera annars stigs fellibylur yfir í að verða fjórða stigs fellibylur á aðeins nokkrum klukkustundum. Í nótt minnkaði styrkur hans aftur en engu að síður telja veðurfræðingar að hann muni að líkindum sækja í sig veðrið þegar hann kemur að landi.
Um það leyti sem Florence gengur á land mun vindur af sjó ganga niður. Þetta gæti gert það að verkum að fellibylurinn sitji fastur yfir Norður- og Suður-Karólínu þar sem hann mun gera mikinn óskunda í langan tíma, jafnvel nokkra daga. Strandsvæði ríkjanna tveggja gætu þannig upplifað mjög öflugan fellibyl, samfellt í rúman sólarhring. Þessi mikli og stöðugi vindur gæti valdið miklu tjóni, til dæmis á húsum.
Þvert á það sem margir kynnu að halda er vindurinn ekki það sem menn óttast mest. Hætta er á stórflóðum af völdum áhlaðanda. Eins og segir orðrétt á Wikipedia er áhlaðandi breyting á stöðu sjávar á lágþrýstingssvæði vegna þess að sterkir vindar þrýsta á yfirborð vatnsins og öldurnar hrannast upp fyrir venjulega sjávarhæð. Í grunnu vatni við ströndina, til dæmis á háflóði, getur mikill áhlaðandi valdið sjávarflóði. Brock Long, yfirmaður hjá almannavörnum Bandaríkjanna, segir að áhlaðandi geti valdið mestu manntjóni og mestu fjárhagstjóni. Svörtustu spar gera ráð fyrir að fjölmörg svæði við ströndina fari á kaf.
Fyrir utan sjávarflóðin er Florence talinn innihalda gríðarlega úrkomu. Eins og segir í öðrum lið gæti Florence orðið mjög langlífur sem þýðir að hann mun dæla mikilli úrkomu á afmörkuð svæði í langan tíma. Til marks um þessa úrkomu er þess getið í umfjöllun CNN að úrkoman á vissum svæðum í Norður-Karólínu verði rúmir 100 sentímetrar, sem jafngildir meðalársúrkomu í höfuðborginni Washington D.C. Það sem gerir þetta enn verra er sú staðreynd að mikið hefur rignt að undanförnu í Norður-Karólínu og óvíst er hversu mikilli úrkomu jarðvegurinn getur tekið við.
Íbúar Karólínuríkjanna tveggja munu væntanlega finna mest fyrir Florence. Þegar fellibyljatímabilin hefjast sleppur austurströnd Bandaríkjanna oft ágætlega, að minnsta kosti betur en önnur svæði, til dæmis við Mexíkóflóa. 29 ár eru liðin síðan fellibylurinn Hugo olli miklu tjóni á svæðinu en síðan þá hefur íbúafjöldi aukist mjög. „Það búa nú um fjórðungi fleiri á svæðinu frá Charleston í Suður-Karólínu til Morehad City í Norður-Karólíníu en þegar Hugo reið yfir. Margir þeirra sem búa hér hafa aldrei séð jafn öflugan fellibyl og hafa ekki hugmynd um hvað gæti verið í vændum,“ segir Chad Myers, veðurfræðingur CNN að lokum.