Eins og DV skýrði nýlega frá þá hefur nýr rannsóknarhópur verið settur í rannsókn málsins og er hann að fara yfir öll gögn málsins. Meðal þess sem rannsóknarhópurinn hefur gert er að hefja nýja og umfangsmikla rannsókn í vatninu þar sem lík Emilie fannst. Óvenjulega lítið vatn er í vatninu núna vegna mikilla þurrka í sumar og það veitir lögreglunni gott tækifæri til að gera enn nákvæmari rannsóknir þar en áður. Rannsóknin hefur staðið yfir það sem af er þessari viku og er fjöldi lögreglumanna og sérfræðinga við störf við vatnið.
Dagbladet Køge skýrir frá því að maður, sem býr nærri vatninu, hafi sett sig í samband við lögregluna. Maðurinn telur að líkið hafi ekki verið í vatninu frá því í júlí og þar til á aðfangadag 2016. Það hljóti að hafa verið flutt þangað löngu síðar. Maðurinn gengur meðfram vatninu daglega með hundinn sinn og hann er þess fullviss að líkið geti ekki hafa legið í vatninu allan þennan tíma.
Ekstra Bladet spurði Kim Kliver, lögreglufulltrúa hjá lögreglunni á Suður-Sjálandi og Lálandi og Falstri, um þessa kenningu mannsins. Hann vildi ekki tjá sig um hana sérstaklega en sagði að lögreglan tæki fegin við öllum ábendingum vegna málsins og skrái þær og skoði betur.