Það hefur verið ansi órólegt á Norðurbrú í Kaupmannahöfn undanfarna daga en þar takast tvö glæpagengi á og hafa nokkrar skotárásir verið gerðar. Lögreglan hefur því aukið viðveru sína á svæðinu. Um klukkan 20 í gær voru margir lögreglumenn á Norðurbrú þegar hvítum Mini Cooper var ekið eftir Haraldsgade. Skyndilega var skotið úr bílnum á hóp ungs fólks sem stóð við götuna. Lögreglumenn, sem voru nærstaddir, drógu strax upp skammbyssur sínar og skutu á bílinn sem var ekið á brott.
Skömmu síðar fannst bíllinn ekki fjarri og var rúða í honum brotinn og nærri honum lá sjálfvirkt skotvopn. Enginn var í bílnum. Skömmu síðar var komið með særðan mann á sjúkrahús í nágrenninu. Lögreglan hefur ekki enn upplýst hvort sá hafi orðið fyrir skotum lögreglunnar. Enginn varð fyrir skotum í Haraldsgade.
Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins en lögreglan mun veita nánari upplýsingar um það er líður á morguninn.