„Fyrir nokkrum árum byggði ég tætara í laumi inn í myndarammann, ef málverkið skyldi einn daginn verða boðið upp,“ segir í myndbroti þar sem afhjúpuð er tæknin á bakvið við einn umtalaðasta atburð listheimsins á þessu ári.
Huldulistamaðurinn Banksy var á vörum margra á dögunum vegna hrekks sem þótti afar frumlegur. Þetta byrjaði með því þegar Banksy ákvað að selja eitt af þekktari verkum sínum á uppboði hjá Sotheby’s, þar sem listunnendur úr öllum áttum kepptust um kaupin. Listaverkið nefnist Stúlka með blöðru og seldist að lokum fyrir rúmlega eina milljón punda, eða um 155 milljónir íslenskra króna.
Hins vegar urðu margir uppboðsgestir orðlausir þegar listaverkið byrjaði að eyðast fyrir augum allra, en þá hafði Banksy sett bréfatætara í myndarammann. Margir gestir voru þá vissir um að verðgildi verksins myndi snarlækka en í kjölfar umtalsins og viðbragða kom hið gagnstæða í ljós.
En hvernig fór Banksy að því að setja bréfatætara í rammann?
Í myndbandinu neðst má sjá hvernig ramminn var græjaður.