Móðir og fjögur börn hennar fundust látin á heimili í bænum Columbia í Tennessee í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Grunur leikur á að móðirin hafi myrt börn sín áður en hún svipti sig lífi.
Börnin voru á aldrinum 8 til 16 ára; þrjár stúlkur og einn drengur.
Lögregla var kölluð að íbúðinni eftir að nágrannar tilkynntu um skothvelli. Þegar lögregla kom á svæðið kom í ljós hvað gerst hafði. Lögregla rannsakar nú málið en að því er AP greinir frá hafði lögregla ekki áður haft afskipti af fjölskyldunni.