Að minnsta kosti tíu eru sagðir látnir og fjölmargir særðir eftir að öflug sprenging varð í skóla í borginni Kerch á Krímskaga í Rússlandi. Margt þykir benda til að um hryðjuverk hafi verið að ræða.
Um er að ræða tækniskóla á menntaskólastigi og voru fjölmargir nemendur í skólanum þegar sprengingin varð. Fyrstu fregnir hermdu að um einhverskonar gassprengingu hafi verið að ræða en síðar vöknuðu grunsemdir að um hryðjuverkaárás hafi verið að ræða.
Þykja ummerki á vettvangi benda til þess og segir BBC til að mynda að málmbrot hafi þeyst í allar áttir um það leyti sem sprengingin varð.
Kerch er borg austast á Krímskaga og er ekki ýkja langt síðan brú opnaði sem tengir saman austari hluta skagans við meginland Rússlands.