fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Þarna búa 500 manns: Fjórir barir, vændishús og hárgreiðslustofa

Ritstjórn Pressunnar
Mánudaginn 22. október 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viktoríuvatn er eitt stærsta vatn Afríku en á henni stendur eyjan Migingo. Enginn veit í raun hvaða landi Migingo tilheyrir, en bæði Kenía og Úganda hafa gert tilkall til hennar.

Eyjan er agnarsmá, minni en fótboltavöllur í fullri stærð, en þrátt fyrir það heimili um 500 íbúa, að því er talið er.

Eins og meðfylgjandi myndir bera með sér er byggð afar þétt á henni og hver fermetri nýttur til fulls. Þess má til gamans geta að fyrsta húsið, eða kofinn, eftir því hvernig á það er litið, reis á eyjunni árið 2002 og síðan þá hefur þeim fjölgað ört.

Atvinnuvegur íbúa eyjarinnar eru fiskveiðar eins og kannski gefur að skilja. Þó að eyjan sé lítil búa íbúar ekki við neinn skort. Fjórir barir eru á henni, hárgreiðslustofa og vændishús, að því er fram kemur í nýlegri grein sem birtist á vef breska blaðsins Mirror. Þröngar götur liggja á milli húsanna og íbúar virðast lifa þarna í sátt og samlyndi þó svo að tvær þjóðir berjist um yfirráðin yfir eyjunni.

Migingo stendur í raun á landamærum Úganda og Kenía og eru íbúar eyjunnar frá báðum löndum. Deilurnar um eyjuna hafa stundum verið kallaðar „minnsta stríð Afríku“ en nú stendur til að útkljá deiluna í eitt skipti fyrir öll.

Nefnd sem skipuð verður fulltrúum beggja ríkja er ætlað það hlutverk að ákveða nákvæmlega hvar landamærin eru og hvar eyjan stendur með tilliti til þeirra. Þegar þeirri vinnu lýkur ætti niðurstaða að fást í málið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?