Lögreglan hóf strax leit að konunni og þyrla var fengin til leitar. Sjálfboðaliðar, meðal annars frá norska leitarhundarfélaginu og Rauða krossinum, voru einnig fengnir til leitar. Leit hefur staðið yfir í alla nótt en án árangurs að sögn TV2.
Konan er vön að fara með hundinn út í skóg og á akur í nágrenni við heimili hennar. Svæðið er erfitt yfirferðar og gerir leitina erfiða. Talsmaður lögreglunnar segir að lögreglan hafi enga hugmynd um hvar konan geti verið niðurkomin og að eins og staðan sé núna bendi ekkert til að hún hafi orðið fórnarlamb glæps.