Óhætt er að segja að árið 2017 hafi verið gjöfult fyrir milljarðamæringa heimsins því aldrei áður í sögunni hafa þeir grætt jafn mikið. Auðkýfingar heimsins juku eignir sínar um fimmtung, eða upp í 8,9 trilljónir Bandaríkjadala, á liðnu ári.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu svissneska UBS-bankans sem Guardian vitnar til í umfjöllun sinni.
Skýrslan varpar meðal annars ljósi á mikla söfnun auðs þeirra ríkustu á undanförnum 30 árum.
Skýrslan tekur til 2.158 milljarðamæringa í heiminum – þeirra allra ríkustu með öðrum orðum – en samkvæmt skýrslunni jukust eignir þeirra um 1,4 trilljónir dala árið 2017. Þetta er meðal annars rakið til mjög hagstæðra aðstæðna á hlutabréfamörkuðum.