fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Ellefu ára drengjum skipað að reykja sígarettur í refsingarskyni

Tómas Valgeirsson
Laugardaginn 10. nóvember 2018 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hópur ellefu ára skóladrengja í borginni Sukabumi í Indónesíu fékk refsingu sem hefur valdið hörðum deilum.

Þetta hófst með því að skólastjórinn, Tati Maelati að nafni, kom að hópnum reykjandi sígarettur í miðjum frímínútum. Þá ákvað hann að draga drengina til hliðar og skipaði þeim að reykja fleiri sígarettur í refsiskyni inni á skrifstofu sinni.

Fréttaveitan Mirror greinir meðal annars frá þessu, en þar kemur fram að þessi óvenjulega hegning olli miklum usla hjá foreldrum drengjanna, sem voru átta talsins. Nokkrir foreldrar höfðu samband við fjölmiðla og hyggjast margir ætla að draga syni sína úr skólanum.

„Hugmyndin með þessari refsingu var að hafa fyrirbyggjandi áhrif,“ segir Maelati í samtali við fréttamiðilinn. „Ég vildi að drengjunum yrði óglatt, að þeir finndu fyrir því hversu óheilbrigt er að reykja.“

Hópur foreldra hefur nú fundað með Maelati og hefur honum verið bannað að beita þessari aðferð framar.

Mynd: ViralPress
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?