fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Pressan

Unglingur sakaður um að hafa myrt móður sína eftir deilur um slakar einkunnir

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 11. nóvember 2018 15:30

Gail Cleavenger

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

15 ára unglingspiltur hefur verið ákærður fyrir morð að yfirlögðu ráði. Lögregla telur að hann hafi kyrkt móður sína og fengið vini sína til að hjálpa sér við að grafa lík hennar. Voðaverkið var framið í kjölfar rifrildis um slakar einkunnir sonarins.

Atburðurinn átti sér stað í Florida. Hin látna er Gail Cleavenger, 46 ára gömul. Mæðginin deildu vegna þess að drengurinn hafði fengið D í einkunn í skólanum. Deilurnar urðu ákafari og enduðu með dauða móðurinnar. Eiginmaður hennar og faðir drengsins var á viðskiptaferðalagi er átökin áttu sér stað, en þetta gerðist síðastliðið fimmtudagskvöld.

Drengurinn reyndi að láta líta út fyrir að innbrot hefði átt sér stað á heimilinu og hann fékk vini sína til að hylma yfir glæpinn með sér, meðal annars með því að grafa lík móðurinnar í nágrenninu.

Nánar segir frá málinu á Huffington Post.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Tíu ára drengur játar á sig morð: Var sjö ára þegar hann framdi voðaverkið

Tíu ára drengur játar á sig morð: Var sjö ára þegar hann framdi voðaverkið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf
Pressan
Fyrir 2 dögum

Orrustan um Bretland

Orrustan um Bretland
Pressan
Fyrir 3 dögum

Áður óþekktar lífverur fundust við neðansjávarfjall við Páskaeyju – Myndband

Áður óþekktar lífverur fundust við neðansjávarfjall við Páskaeyju – Myndband
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ferðin til Mallorca endaði með nokkurra daga hryllingi og björgunaraðgerð á flugvelli í Afríku

Ferðin til Mallorca endaði með nokkurra daga hryllingi og björgunaraðgerð á flugvelli í Afríku