Skotvopn, seðlabúnt og lúxusbílar eru daglegt brauð á Instagram-síðu sem meðlimir Hellbanianz-klíkunnar í Barking í austurhluta Lundúna birta.
Mail Online fjallaði ítarlega um gengið í morgun sem er sagt ráða lögum og lofum á fíkniefnamarkaðnum í borginni. Í umfjöllun vefmiðilsins kom fram að gengið hafi staðið á bak við smygl á gríðarlegu magni af kókaíni undanfarin misseri.
Svo virðist vera sem meðlimir klíkunnar séu ekki feimnir við að birta myndir af sér opinberlega. Er klíkan og liðsmenn hennar með um 100 þúsund fylgjendur á Instagram.
Þrír háttsettir liðsmenn klíkunnar voru dæmdir í samtals 42 ára fangelsi árið 2016 eftir að mikið magn fíkniefna fannst í fórum þeirra. Fíkniefni var ekki það eina sem lögregla lagði hald á því hún haldlagði einnig skotvopn.
Þessir fangelsisdómar virðast ekki hafa gert mikið til að draga úr öðrum liðsmönnum sem eru duglegir að birta myndir af peningum, lúxusvörum og jafnvel fíkniefnum á Instagram. Þeir segjast „stjórna“ borginni og segjast „tilbúnir í stríð“ við önnur glæpagengi.
Einn af leiðtogum klíkunnar, Tristen Aslanni, var dæmdur í 25 ára fangelsi árið 2016 vegna fyrrnefnds fíkniefna- og vopnalagabrots. Fíkniefni að andvirði um 800 milljóna króna fundust í fórum hans. Hann var handtekinn eftir að hafa misst stjórn á bifreið sinni þegar lögregla veitti honum eftirför.
Í umfjöllun Mail Online er bent á að Albanía sé einn af miðpunktum Evrópu þegar kemur að fíkniefnasmygli. Þannig lagði lögregla í febrúar síðastliðnum hald á gríðarlegt magn af kókaíni í borginni Durres, næstfjölmennustu borg Albaníu. Eiturlyfin, sem metin voru á 20 milljarða króna, voru falin í bananakössum en sendingin sem um ræðir var að koma frá Kólumbíu. Eru taldar sterkar líkur á að talsverður hluti þess kókaíns hafi átt að enda á götum Lundúna.