Söngvarinn Morrissey komst í hann krappan á tónleikum í San Diego á laugardagskvöld þegar áhorfandi hljóp upp á svið og virtist slá til söngvarans.
Tónleikarnir fóru fram í Copley Symphony Hall í Jacobs Music Center og var Morrissey að syngja lokalag tónleikanna þegar atvikið átti sér stað. Eins og sést á meðfylgjandi myndbandi varð uppi fótur og fit og hlupu einhverjar tónleikagesta upp á svið af ókunnum ástæðum. Einum þeirra tókst að komast að söngvaranum og er hann sagður hafa slegið hann.
Öryggisverðir komu Morrissey til hjálpar og fóru með hann baksviðs.
Í yfirlýsingu frá starfsliði Morrissey sem birtist í gær kom fram að enginn hafi reynt að slá til söngvarans eða meiða hann. „Áhorfendur voru bara að gera það sem þeir hafa gert síðustu 30 ár. Reyna að komast upp á svið og snerta hann eða faðma hann. Þessi tiltekni áhorfandi var vissulega ákafari í þeirri viðleiðni sinni en flestir, svo öryggisverðir þurftu að sinna sínu starfi og yfirbuga hann. Það er allt og sumt. Enginn slasaðist og enginn var handtekinn.“