fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Voru fljúgandi furðuhlutir við strendur Írlands á föstudaginn? Yfirvöld rannsaka málið

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 13. nóvember 2018 06:47

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Írsk flugmálayfirvöld eru nú að rannsaka hvort fljúgandi furðuhlutir, sem eru geimför vitsmunavera frá öðrum plánetum, hafi sést við strendur landsins á föstudaginn. Flugmenn tilkynntu þá um skær ljós og fljúgandi furðuhluti við suðvestur strönd landsins.

Þetta hófst klukkan 06.47 þegar flugmaður flugvélar British Airways hafði samband við flugumferðarstjora í Shannon og spurði hvort heræfingar væru á svæðinu því þar væri eitthvað „sem hreyfist svo hratt“. BBC skýrir frá þessu. En flugumferðarstjórinn gat svarað því til að engar æfingar væru í gangi.

Flugmaðurinn, sem var að fljúga frá Montreal í Kanada til Heathrow í Lundúnum, sagðist hafa séð „mjög skær ljós“ og að hluturinn hafi komið upp að vinstri hlið flugvélarinnar áður en hann „breytti um stefnu til norðurs“. Flugmaðurinn sagðist telja að árekstrarhætta hafi ekki verið til staðar.

Flugmaður flugvélar frá Virgin flugfélaginu blandaði sér þá í samtalið og stakk upp á að hér gætu verið loftsteinar eða aðrir hlutir að koma inn í gufuhvolfið því „margir hlutir á sömu braut“ væru þarna og væru þeir mjög skærir. Hann sagðist hafa séð tvö „mjög skær ljós“ hægra megin við flugvélina sem hafi hækkað flugið hratt.

Írsk flugmálayfirvöld segja að í kjölfar tilkynninga frá nokkrum flugvélum um „óvenjulega flugumferð“ sé verið að rannsaka málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leynidagbók grunnskólakennarans kom upp um níðingsverk hennar

Leynidagbók grunnskólakennarans kom upp um níðingsverk hennar
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig