fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Landlæknir varar við HIV-faraldri á Grænlandi

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 15. nóvember 2018 05:17

Frá Grænlandi. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grænlenski landlæknirinn, Henrik Hansen, segir að það verði að taka mjög alvarlega að fimm ungar manneskjur hafa smitast af HIV á Grænlandi að undanförnu. Fólkið er á aldrinum 20 til 40 ára. Hann hefur sérstakar áhyggjur af að hér er um ungt fólk að ræða því það á að jafnaði fleiri rekkjunauta en þeir sem eldri eru og því sé jafnvel hætta á enn meiri útbreiðslu veirunnar.

KNR hefur eftir honum að málið sé mjög alvarlegt því fimm smit séu mjög mikið í grænlensku samhengi. Mikill áróður hefur verið rekinn fyrir notkun smokka á Grænlandi og smokkum er dreift ókeypis til fólks en samt sem áður virðast margir láta hjá líða að nota þá. En það er ekki aðeins HIV sem færist í aukana því sárasóttartilfellum hefur einnig fjölgað.

Hansen telur að sárasóttartilfellin verði langt yfir 100 á árinu og hann óttast að HIV geti breiðst út á álíka hátt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hún kom að eiginmanninum með annarri konu – Síðan gerði hún svolítið hræðilegt

Hún kom að eiginmanninum með annarri konu – Síðan gerði hún svolítið hræðilegt
Pressan
Fyrir 3 dögum

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð
Pressan
Fyrir 4 dögum

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu
Pressan
Fyrir 4 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf