fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Ódýrari matur, leikföng og raftæki og aukinn kaupmáttur – Þetta búa nágrannar okkar við

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 15. nóvember 2018 07:55

Krónurnar streymdu yfir Eyrarsund.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kjöt, sælgæti, leikföng, fatnaður og raftæki hafa lækkað í verði á milli ára. Flugmiðar og rekstrarkostnaður bíla hefur hins vegar hækkað á sama tíma. Þegar þetta er allt gert upp þá hækkaði verðlag í Danmörku um 0,8% prósent frá október á síðasta ári þar til í október á þessu ári. Þetta er lítil hækkun að mati margra hagfræðinga og þá ekki síst í ljósi þess að laun hækkuðu að meðaltali um 2,6% prósent á tímabilinu. Launin standa því undir töluvert meiri neyslu en áður. Þetta er eflaust eitthvað sem margir Íslendingar hefðu ekkert á móti að sjá meira af.

Danska ríkisútvarpið skýrir frá þessu. Fram kemur að matarverð hafi lækkað um 0,8% á tímabilinu. Til dæmis hefur verð á svínakjöti lækkað um 3,4% en einnig lækkaði verð á kjúklingum, kartöflum og súkkulaði á tímabilinu. Haft er eftir Las Olsen, hagfræðingi, að þetta hafi komið honum á óvart, sérstaklega í ljósi þess að landbúnaðurinn hafi glímt við mikla erfiðleika vegna mikilla þurrka í sumar.

Verðbólgan á tímabilinu mældist 0,7% en í ESB var hún að meðaltali 2,1%. Olsen segir að ástæðan sé að Danir verði fyrir minni áhrifum en aðrar þjóðir af hækkandi olíuverði því þeir noti minna bensín en aðrar þjóðir og lítið sé um að olía sé notuð til kyndingar. Bensínverð hækkaði þó um 9,5% á tímabilinu en það skýrir hærra verð á flugferðum.

Olsen sagði að þetta væru í heildina góð tíðindi en það verði þó að hafa þann fyrirvara á að Danir séu að jafnaði skuldsettari en nágrannar þeirra í Evrópu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?