Meint mannæta mætti fyrir dóm í Suður-Afríku í síðustu viku, en hann er sagður hafa mætt á lögreglustöð með afhöggna hendi og fót þakinn ormum og sagst vera þreyttur á að borða mannakjöt.
Nino Mbatha, sem er heilari, var handtekinn er hann mætti með afhöggna útlimi á lögreglustöð í Estcourt í Suður-Afríku. Samkvæmt Sunday Times á Mbatha að hafa komið á stöðina til að tilkynna að hann hefði í sínum fórum mennska útlimi og að hann væri þreyttur á að borða mannakjöt. Hann vísaði lögreglumönnum því næst á heimili sitt þar sem fundust fleiri líkamshlutar. Sjö menn á þrítugs- og fertugsaldri voru handteknir í tengslum við málið.
Bæjarstjóri Estcourt, Jabu Mbhele, segir málið mikinn skell fyrir bæinn og þá einkum ímynd hans. Nafn bæjarins sé nú tengt við mannát og íbúar hans álitnir frumstæðir. Hún telur þó að með samfélagslegri umræðu og bænum sé hægt að vega á móti þeim skaða sem málið hefur valdið og bað mótmælendur, sem saman voru komnir fyrir utan dómshúsið, um að taka lögin ekki í eigin hendur heldur veita dómstólum svigrúm til að leiða málið til lykta.