Það var ekki beint sólbaðsveður á Tenerife um helgina því mikið óveður gekk yfir eyjuna og nágrenni hennar um helgina.
Íbúum 65 íbúða í tveimur fjölbýlishúsum við sjávarsíðuna í Mesa del Mar var gert að yfirgefa heimili sín – sem var kannski eins gott eins og meðfylgjandi myndbönd bera með sér.
Sjór gekk á land og var hamagangurinn það mikill að sjórinn greip svalahandrið á þriðju hæð í einu húsi með sér. Veðrið var verst á norðurhluta Tenerife en íbúar og ferðamenn annars staðar á Kanaríeyjum fundu einnig fyrir óveðrinu.
Síðast þegar vitað var hafði ekki verið tilkynnt um slys á fólki.
Ola arrancando barandas en balcones en el Marisol de Mesa del mar, Tenerife ???? #FMACANARIAS pic.twitter.com/4gdWSnDNvq
— Nelson J. Acosta ? (@NelsonAcosta80) November 18, 2018