Unglingspiltur var skotinn og stunginn nærri skóla í Nacka, sem er í útjaðri Stokkhólms, í gærkvöldi. Lögreglunni barst tilkyning um málið á tólfta tímanum og fundu lögreglumenn piltinn særðan við Skuru skólann. Hann hafði verið skotinn í mjöð og fótlegg og stunginn í öxl.
Hann var fluttur á sjúkrahús en er ekki í lífshættu að sögn lögreglunnar. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.