fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Hvað segir Trump nú? Ivanka dóttir hans gerði það sama og Hillary Clinton

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 20. nóvember 2018 05:41

Ivanka Trump. Mynd:U.S. Department of State

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ivanka Trump, dóttir Donald Trump Bandaríkjaforseta, er titluð sem ráðgjafi hans og er þar með starfsmaður í Hvíta húsinu. Sem slíkur á hún að notast við netþjóna hins opinbera þegar hún sendir tölvupósta en eins og frægt varð í kosningabaráttu Trump og Hillary Clinton fyrir tveimur árum hafði Hillary notaði sinn eigin netþjón til slíkra sendinga. Þetta hefur Trump gagnrýnt harðlega og margoft sagt að dæma eigi Hillary í fangelsi fyrir þetta. En nú er komið á daginn að Ivanka hefur gert nákvæmlega það sama og Hillary og því er spurningin auðvitað hvað Trump segir núna?

Það var við nýlega yfirferð á tölvupóstum fimm ráðuneyta og stofnana þeirra sem embættismenn ráku augun í að Ivanka hefur notað sinn eigin netþjón til að senda mörg hundruð tölvupósta til starfsmanna Hvíta hússins og til ráðherra og aðstoðarmanna þeirra. Washington Post segir að þetta brjóti gegn opinberum reglum um tölvupósta.

Skoðun embættismanna sýnir að á síðasta ári notaði Ivanka margoft sitt eigið netfang og netþjón, sem hún deilir með eiginmanni sínum Jared Kushner, til að ræða opinber málefni tengd Hvíta húsinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hún kom að eiginmanninum með annarri konu – Síðan gerði hún svolítið hræðilegt

Hún kom að eiginmanninum með annarri konu – Síðan gerði hún svolítið hræðilegt
Pressan
Fyrir 3 dögum

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu
Pressan
Fyrir 4 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf