Joe Shelton, 54 ára karlmaður í Nashville í Bandaríkjunum, var á leið til vinnu í gærmorgun á Nissan GTR-bifreið sinni. Joe fór alltaf sömu leið í vinnuna en í þetta skipti komst hann ekki á áfangastað.
Skyndilega lenti grjóthnullungur á framrúðu bifreiðarinnar. Höggið var þungt, framrúðam brotnaði og lenti grjótið í höfði Sheltons sem var úrskurðaður látinn skömmu síðar.
Lögregla telur útilokað að um slys hafi verið að ræða og telur að einhver hafi kastað grjótinu af göngubrú fyrir ofan brautina. Slysið varð rétt fyrir klukkan fimm í gærmorgun en Joe starfaði í verksmiðju Nissan í Smyrna.
Lögregla fer nú yfir eftirlitsmyndavélar í þeirri von að finna sökudólginn og þá eru allir sem einhverjar upplýsingar hafa hvattir til að gefa sig fram við lögreglu.