Tveir eru látnir og 11 manns eru særðir eftir skotárás nálægt jólamarkaði í frönsku borginni Strasbourg. Byssumaðurinn, sem lögregluyfirvöld í Frakklandi þekkja til, er á flótta undan lögreglu. Lögreglan særði hann eftir að hermaður hafi skotið á hann. Yfirvöld í Frakklandi segja að af þeim 11 sem séu særðir eru sjö alvarlega særðir.
Lögreglan hefur lokað fyrir umferð á stóru svæði í kringum jólamarkaðinn og hefur hvatt íbúa á svæðinu að halda sig innandyra.