Maðurinn var skotinn í bakið af stuttu færi þegar hann gekk út úr porti við heimili sitt. Síðan var hann skotinn í höfuðið. Svartklæddur maður með trefil fyrir vitum skaut manninn að sögn sjónarvotta. Hann flúði af vettvangi í svartri Chrysler bifreið.
Fjölmargir urðu vitni að morðinu að sögn Aftonbladet.