fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Sorg þegar Amanda skildi við 300 ára gamlan sjóræninga: „FARIÐ MJÖG VARLEGA í samböndum við fólk að handan“

Ritstjórn Pressunnar
Sunnudaginn 16. desember 2018 09:50

Amanda og fáninn sem táknar Jack. Myndir/Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það mætti halda að ást sem náði langt út fyrir gröf og dauða myndi vara að eilífu, en svo er ekki. Amanda Teage frá Louth á Írlandi gekk að eiga „Jack“ í janúar á þessu ári. Málið er að Jack er draugur 300 ára gamals sjóræningja frá Haíti. Amanda lagði mikið á sig til að giftast honum og sigldi út á alþjóðlegt hafsvæði með fjölskyldu og vinum til að halda brúðkaupið án afskipta yfirvalda. Greint er frá þessu furðulega máli á vef Irish Times.

Amanda byrjaði með Jack árið 2014, hún starfaði þá sem eftirherma sem sérhæfði sig í að leika Jack Sparrow úr kvikmyndunum vinsælu um sjóræningjana í Karíbahafinu. Jack mun hafa átt fimm börn úr fyrri samböndum og var hengdur af Bretum fyrir sjórán. Hún tilkynnti á samfélagsmiðlum, í tengslum við brúðkaupið, að hún væri ekki sátt við að vera aðeins hjásvæfa Jacks og setti honum því afarkosti, giftast sér eða hypja sig aftur út á sjó.

Brúðkaupið fór fram á alþjóðlegu hafsvæði.

Það er löglegt að giftast draugum víða um heim, þar á meðal í Frakklandi og í Kína en ekki á Írlandi. Þess vegna var brúðkaupið haldið utan við lögsögu Írlands. Jack var „á staðnum“ í gengum sjóræningjafána og fékk Amanda sjálfstæðan miðil til að tala fyrir hönd Jacks í brúðkaupinu til að gestir gætu verið vissir um að það væri í raun hann að tala en ekki bara hún.

Athöfnin um borð. Sjálfstæður miðill talaði fyrir Jack.

Amanda tók skilnaðinn nærri sér en er líka sátt að hafa náð loks að taka skrefið og skilja við drauginn. Hún er alls ekki sú fyrsta til að vera á föstu með draug, hún segir mikla kosti við það, þar á meðal að kynlífið sé mun betra en með lifandi karlmönnum. Þau fóru í brúðkaupsferð á Írlandi áður en þau fluttu inn saman á heimili hennar í Downpatrick. Þau munu hafa farið reglulega í bíó og út að borða.

Amanda hefur nú tilkynnt um sambandsslitin. „Ég skal útskýra þetta í smáatriðum síðar en núna vil ég bara segja við alla: FARIÐ MJÖG VARLEGA í samböndum við fólk að handan, það er ekkert til að leika sér að…“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leynidagbók grunnskólakennarans kom upp um níðingsverk hennar

Leynidagbók grunnskólakennarans kom upp um níðingsverk hennar
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig