Danska ríkisútvarpið fjallaði nýlega um málið og ræddi við Therese Ovesen, yfirlækni og prófessor í háls-, nef- og eyrnalækningum. Hún sagði að fólk eigi alls ekki að nota eyrnapinna því ef þeir eru notaðir þá eykst eyrnamergsframleiðslan því eyrnamergskirtlarnir halda að drulla sé í eyrunum og auka framleiðsluna sem því nemur. Þá sé fólk komið inn í slæman vítahring sem erfitt er að losna út úr.
Hún sagði einnig að ef fólk notar eyrnapinna ýti það eyrnamerg lengra inn í eyrun. Auk þess geti þeir rispað húðina í eyrunum og þá verður fólki hættara við að fá sýkingu. Ef eyrnapinnar fara of langt inn í eyrun geta þeir gert gat á hljóðhimnuna og það er auðvitað allt annað en þægilegt.
Hún sagði það stóran misskilning að fólk þurfi að hreinsa eyrun. Þau sjái alveg um það sjálf. Eyrnamergurinn sé einmitt til þess. Hann taki til sín drullu og dauðar frumur. Hún sagði að það væru þó ákveðin undartekningartilfelli þar sem þarf að hreinsa eyrun en þá eigi fólk að fara til eyrnalæknis.