Biðin styttist með hverjum deginum, snjórinn minnkar og veiðimenn eru orðnir verulega spenntir. Laxinn er að skríða upp Hvítá í Borgarfirði þessa dagana, þeir stóru. Veiðimenn eru alltaf að kíkja á stöðuna, einn og einn niðurgöngulax er ennþá í ánum. Myndin tekin við Norðurá í Borgarfirði fyrir skömmu þar sem allt var með kyrrum kjörum ennþá. Mynd G.Bender