Sjóbirtingsveiðin fer vel af stað og veiðimenn að fá flotta veiði víða. Við heyrðum í Valsaranum Sigurði Má Ólafssyni við Varmá en þar hefur veiðiskapurinn byrjað með látum.
Gefum Sigga orðið. ,,Núna á þessari stundu eru komnir um 50 fiskar, mikið úr Stöðvarbreiðunni,síðan niður með bökkunum og restin hér og þar um svæðið. Stærsti sem hefur komið hefur á land var 80 cm og síðan annar 70 cm hjá Grétari, Odd og Viktori,“ sagði Siggi hress að vanda með veiðina og annað verður að teljast gott í byrjun.