Veiðin er hafin á Þingvöllum og stórfiskurinn er byrjaður að gefa sig fyrir alvöru. Og veiðimenn eru fá góða veiði. Við heyrðum í einum sem byrjaði sumarið með látum á Þingvöllum fyrsta daginn
Aron Jarl fékk þrjá flotta fiska í Þjóðgarðinum á fyrsta degi.
,,Já, ég þrjá fiska, einn 78 cm, einn 73 cm og svo loks einn 30 cm en fiskana veiddi ég á Lambhaga í þjóðgarðinum. Tóku báðir þessir stóru Back Ghost Olive Green og þetta var skemmtilegt. Sumarið byrjar vel,“ sagði Aron Jarl ennfremur.
Stórurriðinn er byrjaður að gefa sig, veiðimenn byrjaðir að fá hann. Það er fyrir mestu.
Mynd. Aron Jarl með flottan urriða úr Þingvallvatni