,,Við ætluðum aðeins að reyna í smá stund félagarnir, nokkur köst,“ sagði veiðimaðurinn Ómar Smári Óttarsson sem var einn af þeim fjölmörgu, sem heimsóttu Elliðavatn um helgina.Þegar Veiðipressan var þarna á ferð var töluvert um veiðimenn á svæðinu en veiðin var að sama skapi ekki mikil.
Veiðimenn reyndu víða um vatnið, fiskurinn vakti en takan var ekki sérstaklega góð. En tilveran er verulega góð. En fiskurinn mætti vera í meiri tökustuði.
Mynd. Veiðimenn kasta flugunni fyrir fiska á Elliðavatni á sunnudaginn margir voru að veiða. Mynd Maria Gunnarsdóttir.