,,Við erum búnir að vera víða, eins og t.d. í Mýrarkvísl, og hún gaf okkur flotta urriða,“ sagði Matthías Þór Hákonarson er við spurðum um veiði, en hann hefur verið leiðsögumaður erlenda veiðimenn síðustu daga.
,,Við fórum síðan í Lónsá og Brunná. Já, veiðin var góð og við fengum flotta fiska,“ sagði Matthías ennfremur.
Veiðin í Litluá í Kelduhverfi hefur verið góð og það hafa veiðst flottir fiskar. Heyrðum í veiðimönnum sem fengu 10 fiska á einum degi, góða fiska.
Mynd. Flottur urriði úr Mýrakvílsinni. Mynd Matti