Haraldur Eiríksson var í viðtali í veiðiþættinum í Bændablaðinu í síðustu viku, sem er komin aftur á sinn stað enda veiðitímabilið hafið. Haraldur segir stöðuna á veiðileyfamarkaðnum alls ekki góða þessa dagana og mikið til að veiðaleyfum víða.
En Haraldur segir meðal annars í viðtalinu.
,,Mér finnst markaðurinn vera erfiður. Úti í heimi kvarta veiðimenn sáran yfir sterkri krónu og það verður að segjast eins og er að þessar eilífu sveiflur á gjaldmiðlinum eru ekki beint að hjálpa okkursem erum með stærstan hluta af veiðileyfaveltunni erlendis. Að sama skapi er innanlandsmarkaðurinn ákaflega erfiður og ekki hjálpa til hækkandi verð ofan í stöðu krónunnar.“
En hvað veldur?
,,Ég tel þetta að hluta til vera ímyndarvandamál. Gott dæmi er fyrirtækjamarkaðurinn sem mjög hefur dregist saman. Nú er það orðið bannorð að fara í laxveiði og það jaðrar við atvinnuróg
hvernig farið er fram í fjölmiðlum. Sem dæmi eru lífeyrissjóðir orðnir stórir eigendur í atvinnulífinu og hjá þeim er algengt að bannað sé að þiggja laxveiðiferðir. Á sama tíma er farið í golf- og fótboltaferðir erlendis án þess að nokkuð þyki fréttnæmt í þeim efnum. Þetta jaðrar við hræsni í mínum bókum.“
Haraldur segir ennfremur að eins hafa forsvarsmenn sjókvíaeldis hérlendis farið hart fram í að
sverta orðspor íþróttarinnar. Þessi norsku fyrirtæki eru með eitt stykki fyrrum forseta Alþingis á spenanum sem hefur verið nokkuð duglegur í þeim efnum ásamt með reiðarsveinum sínum í pólitíkinni á Vestfjörðum. Þá helst til að breiða yfir þann skaða sem þeir sjálfir eru að valda á náttúrunni og lífríkinu.
,,Ég vil sjá landeigendur og þá sem þiggja arð af stangaveiði láta vel í sér heyra þegar að kemur að þessum málaflokki. Yfir 50% atvinnutekna í landbúnaði á Vesturlandi koma frá stangaveiðimönnum og það að þessari mikilvægu tekjulind sé ógnað með þessum hætti er einfaldlega ekki bjóðandi.“