,,Við erum vorum að byrja eftir hádegi í dag og fengum 63 fiska, sá stærsti var 90 cm,“ sagði Ólafur Guðmundsson sjóbirtingsbani, þegar við heyrum í honum Vatnamótin fyrir neðan Kirkjubæjarklaustur, núna í kvöld, nýhættur að veiða eftir góða veiði.
,,Já, þetta gekk og þetta var gaman. Flott veður hérna er svolítið kalt,“ sagði Ólafur ennfremur.
Vatnamótin hafa gefið næstum 200 fiska síðan svæðið opnaði fyrsta apríl sem er frábær veiði. Það er alveg óhætt að segja sjóbirtingsveiðin byrjar vel, fiskurinn er í tökustuði.
Mynd. Sá stóri sem var 90 cm og veiddist í dag. Mynd Ólafur