,,Norskir veiðimenn sem nú veiða í Litluá fengu góða veiði í gær,“ sagði Jón Tryggvi Helgason er við spurðum um Litluá í Kelduhverfi.
Og Jón hélt áfram.,,Ekki skemmdi fyrir að fá þennan fallega urriða sem mældist 82,5 cm og 5,7 kg. Ekkert lát er á góðri veiði í ánni og vatninu. En núna hafa veiðst um 200 fiskar og sumir vel vænir,“ sagði Jón ennfremur.
Sjóbirtingsveiðin gengur víða vel og núna hafa veiðst líklega um 1200 fiskar á þeim svæðum sem hafa opnað fyrir veiðimenn.