Sjóbirtingsveiðin gengur víða vel þrátt frekar kalsalegt veðurfar. En því er spáð að hann hlýni og það getur þýtt betri veiði fyrir veiðimenn næstu daga.
,,Þetta gekk bara vel hjá okkur,“ sagði Hafþór Óskarsson sem var í Varmá við Hveragerði um helgina. En núna hafa veiðst 130 fiskar síðan veiðin byrjaði 1.apríl sem verður að teljast dágóð veiði svona í byrjun veiðitímans.
,, Við fengum 12 fiska og misstum annað eins, það er mikið af fiski víða um ána og þetta var
skemmtilegt. Flugan Krókurinn gaf okkur best í dag. Varmá kemur alltaf á óvart,“ sagði Hafþór
Mynd. Hafþór Óskarsson með flotta bleikju úr Varmá.