Hrekkir eru iðulega lögreglu og skólayfirvöldum til mæðu en það kemur fyrir að þeir eru svo vel heppnaðir að það er ekki annað hægt en að hrósa uppátækinu. Það átti svo sannarlega við í tilviki útskriftarárgangsins úr Cumberland-menntaskólanum í Wisconsin í Bandaríkjunum.
Í menntaskólum, eða High school, víða um Bandaríkin tíðkast að fremja hrekk þegar verið er að dimmitera.
Þegar skólastjórinn, kennarar og nemendur mættu í skólann á dögunum mætti þeim átakanleg sjón, bíll var búinn að klessa á skólann og brjóta vegginn á skrifstofu skólastjórans. En þar ekki allt sem sýndist. Þetta var einfaldlega hrekkur sem skemmdi ekki neitt. Þetta var einfaldlega afturhlutinn af gömlu bílhræi, svartur dúkur og múrsteinar. Skólastjórinn mun hafa brugðið mikið en verið mjög ánægður þegar hann fattaði hvað var á seyði.
„Við tökum ofan fyrir útskriftarárganginum í Cumberland. Þetta er einn besti hrekkur sem við höfum séð,“ sagði lögreglan í Cumberland á Fésbók. Færslunni hefur verið deilt meira en 1.700 sinnum og fagna því flestir hversu vel lögreglan tók í hrekkinn.