Franska lögreglan hefur komið í veg fyrir hryðjuverkaárás þar í landi. Tveir Egyptar hafa verið handteknir vegna málsins að sögn Gérard Collomb innanríkisráðherra. Mennirnir eru bræður.
BFMTV hefur eftir Collomb að mennirnir hafi verið að undirbúa árás með sprengiefnum eða hinu stórhættulega eitri ricin. Hinir handteknu voru með leiðbeiningar í fórum sínum um hvernig á að nota eitrið.