fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Móðir leit út um gluggann og trúði ekki eigin augum – Fimm ára dóttir hennar stálheppin að vera á lífi

Ritstjórn Pressunnar
Föstudaginn 18. maí 2018 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að óhugnanleg sjón hafi mætt móður fimm ára stúlku í Colorado um helgina. Forsaga málsins er sú að stúlkan hafði vaknað um miðja nótt vegna hávaða fyrir utan heimili fjölskyldunnar í East Orchard Mesa.

Stúlkan, Kimberly Cyr, taldi að heimilishundurinn væri eitthvað að brasa fyrir utan en svo reyndist ekki vera. Örstuttu síðar vaknaði móðir stúlkunnar við neyðaróp frá dótturinni og þegar henni var litið út um gluggann sá hún dótturina í gini bjarndýrs. Virtist bjarndýrið vera að gera sig líklegt til að draga stúlkuna burt.

Móðir stúlkunnar sagði við NBC 11 að hún hafi hlaupið út og öskrað á bjarndýrið sem reyndist vera stór og stæðilegur svartbjörn. Björninn forðaði sér þegar móðir stúlkunnar kom út.

Kimberly var flutt alvarlega slösuð á sjúkrahús og þurftu læknar að sauma 77 spor í hana, meðal annars í höfuð. Sem betur fer eru áverkar hennar ekki lífshættulegir og er stúlkan við ágæta heilsu eftir árásina um helgina.

Leit stendur yfir að bjarndýrinu og hefur gildra verið lögð fyrir það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?