fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Þýskur ráðherra segir að Evrópa muni mæta „America First“ af fullum þunga

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 20. maí 2018 20:30

Peter Altmaier. Mynd:Olaf Kosinsky / kosinsky.eu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef Bandaríkin halda fast við hugmyndir Donald Trump, forseta, um að setja hagsmuni Bandaríkjanna ofar öllu öðru, America First, þá mun Evrópa mæta því af fullum þunga. Þetta sagði Peter Altmaier, efnahagsráðherra Þýskalands, í samtali við ARD sjónvarpsstöðina.

Í viðtalinu benti hann á að óskir Bandaríkjanna um að ekki verði lögð gasleiðsla frá Rússland til Þýskalands eigi rætur að rekja til áhuga Bandaríkjanna á að selja gas til Evrópu. Bandaríkjamenn hafi byggt stórar gasstöðvar sem þeir verði að þéna á. Það verði þó dýrara fyrir Evrópu að kaupa það gas en frá Rússlandi.

Altmaier sagði einnig að Evrópa muni mæta því af fullum þunga ef bandarísk stjórnvöld reyni að setja eigin efnahagslegu hagsmuni ofar hagsmunum ríkja sem hafa verið nánir bandamenn Bandaríkjanna til þessa. Bandaríkin verði þá að reikna með að Evrópa muni skilgreina eigin hagsmuni og verja þá með kjafti og klóm.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?