Stjórnvöld í Norður-Kóreu hótuðu í síðustu viku að hætta við leiðtogafundinn. Ástæðan er sögð vera sameiginleg heræfing Bandaríkjanna og Suður-Kóreu sem nú stendur yfir en Norður-Kórea segir æfinguna vera ögrun við einræðisstjórnina.
Þá hafa ummæli John Bolton, þjóðaröryggisráðgjafa Trump, farið illa í norðanmenn. Hann lagði nýlega til að svokallað Líbíumódel yrði notað í málefnum Norður-Kóreu. Þá myndi Norður-Kórea afhenda Bandaríkjunum eða einhverju öðru ríki kjarnorkuvopn sín gegn því að efnahagsþvingunum verði aflétt. Þetta hugnast norðanmönnum illa enda vita þeir vel hvernig fór fyrir Gaddafi, leiðtoga Líbíu, sjö árum eftir að hann samdi um kjarnorkuafvopnun. Honum var velt af stóli og síðan drepinn.
Fundur forsetanna í dag verður notaður til að reyna að komast að niðurstöðu um hvort Kim Jong-un, einræðisherra í Norður-Kóreu, hafi breytt um afstöðu til kjarnorkuafvopnunar á Kóreuskaga.
Aðrir hafa áhyggjur af að Moon Jae-in hafi oftúlkað vilja Kim Jong-un til að ræða kjarnorkumálin og hætta þróun kjarnorkuvopna.