Sænska lögreglan rannsakar nú tvö mál frá í gærkvöldi þar sem grunur leikur á að fólk hafi verið myrt. Á ellefta tímanum í gærkvöldi var lögreglan kölluð að fjölbýlishúsi í Eskilstuna. Í stigaganginum fannst meðvitundarlaus maður sem var með stungusár. Hann var fluttur á sjúkrahús en læknum tókst ekki að bjarga lífi hans. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.
Á svipuðum tíma var lögreglan kölluð að Hisingen í Gautaborg. Þar fundu lögreglumenn látinn mann. Aftonbladet hefur eftir talsmanni lögreglunnar að aðstæður á vettvangi hafi verið þannig að ekki sé hægt að útiloka að um morð hafi verið að ræða. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.