Á síðasta ári uppgötvuðu vísindamenn loftstein sem var á ferð í gegnum sólkerfi okkar en sá kom einhversstaðar utan frá inn í sólkerfið. En nú hafa vísindamenn gert enn betur og fundið loftstein, fyrrgreindan 2015 BZ509, sem hefur leynst í sólkerfinu okkar frá upphafi þess fyrir 4,5 milljörðum ára.
Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem hefur verið birt í vísindaritinu the Monthly Notices of the Royal Astronomical Society: Letters.
Talið er að loftsteinninn sé um þrír kílómetrar að þvermáli. Hann fannst fyrir þremur árum við hefðbundna leit að loftsteinum sem geta ógnað jörðinni. Það vakti strax athygli vísindamanna að loftsteinninn fer í öfuga átt miðað við pláneturnar í sólkerfinu okkar og 99,99 prósent af loftsteinunum í sólkerfinu. Það vakti einnig athygli að hann er á braut um Júpíter á sama hraða og Júpíter.
Í nýju rannsókninni komast stjarnvísindamenn að þeirri niðurstöður að loftsteinninn hafi verið til staðar allt frá upphafi sólkerfisins. Útreikningar þeirra sýna að braut hans hefur ekki breyst í 4,5 milljarða ára.
Vísindamennirnir segja að þegar sólkerfið myndaðist hafi allt í því hreyfst í sömu átt, öfuga átt miðað við þá sem loftsteinni fer í. Á þeim tíma voru pláneturnar og loftsteinar að koma úr stóru gasskýi eða gasdiski og ryki sem varð afgangs þegar sólin myndaðist. Pláneturnar og loftsteinarnir enduðu með að fara í sömu átt og gasdiskurinn snerist. Með öðrum orðum þá voru engir loftsteinar eða plánetur í sólkerfinu okkar á þessum tíma sem gengu í hina áttina og því hljóti þessi loftsteinn að hafa komið utan frá.