Tanya van Cuylenborg og Jay Cook, voru 18 og 20 ára, þegar þau voru myrt. Þau sáust síðast á lífi þann 18. nóvember 1987. Lík þeirra fundust nokkrum dögum síðar. Lögreglan komst ekkert áleiðis með rannsókn málsins og það hefur verið óupplýst allan þennan tíma.
Talbott á yfir höfði sér ákæru fyrir mannrán, nauðgun, tvö morð og rán. Laura Baanstra, systir Jay Cook, segir að fyrir fjölskylduna bindi handtakan enda á þann mikla sársauka sem hafi fylgt því að vita ekki hver myrti Jay og Tanya en um leið fylgi þessu mikil sorg.
Talbott var 24 ára þegar parið var myrt. Hann hefur starfað sem vöruflutningabílstjóri undanfarin 20 ár. Hann er á sakaskrá fyrir eitt smávægilegt brot en hefur annars aldrei komið við sögu lögreglunnar.
Sama tækni og var notuð við rannsókn á máli Golden State raðmorðingjans var notuð við rannsóknina á þessu máli. Sérfræðingum Parabon NanoLabs í Virginíu tókst að finna út hver langafi og langamma Talbott voru með því að nota opinbera erfðaefnisskrá og ættartré. Síðan tókst þeim að rekja sig áfram til Talbott. Lögreglan náði DNA-sýni frá Talbott af bolla sem hann hafði notað.
Cook og Cuylenborg fóru með ferju frá Victoria til Port Angeles í Washington í nóvember 1987 og ætluðu að vera þar í eina nótt og síðan fara heim. Viku eftir að þau hurfu fannst lík Cuylenborg í skurði 20 km sunnan við Bellingham í Washington. Henni hafði verið nauðgað og síðan skotin í höfuðið. Lík Cook fannst nokkrum dögum síðar undir brú í Monroe í Washington. Hann hafði verið barinn og kyrktur.